Dec 10, 2012

Gotterí.

Ó þetta er svo gott!


Ég hakka þetta í mig eins og enginn sé morgundagurinn. Að vísu ætti ég að vera að gæða mér á súkkulaðibitakökum og mjólkurglasi í augnablikinu. En nei - ég hófst handa við að baka súkkulaðibitakökur áðan og áttaði mig á því þegar síðasta platan var í ofninum að ég gleymdi að setja súkkulaðið í kökurnar. Þetta tekst engum nema mér. Ég var samt búin að saxa súkkulaðið og allt. Gleymdi bara að skella því í deigið. Þannig að súkkulaðilausu súkkulaðibitakökurnar fóru í ruslið. Og ég er í rusli.

Mangóinn góði fæst samt í Bónus.

No comments:

Post a Comment