Dec 9, 2012

Makeover.



Eldhússtólarnir mínir fengu örlitla andlitslyftingu. Þeir voru hvítir - svona eins og borðið á myndunum. Það var bara alls ekki nógu gleðilegur litur fyrir augað þannig að sambýlismaðurinn var sendur með alla stólana í lökkun. Aldeilis fínir og ég get ekki hætt að strúkja þeim því þeir eru svo mjúkir og glansandi. Ég er líka dálítið veik fyrir lakklyktinni sem angar af þeim. Ég skrepp stundum inn í eldhús til þess að stelast í eitt og eitt sniff. Allt innan skynsamlegra marka þó. 

Ég hefði hinsvegar alveg mátt hafa skynsamleg mörk í huga þegar ég opnaði hvítvínsflöskuna í gærkvöldi. Ég er ekki frá því að mig hrjái dálítil ónot í dag. 

Skynsamleg mörk, já - man það næst.


1 comment: