Dec 4, 2012

My Kind of Calendar!

Ég elska súkkulaði. Mikið. Þess vegna finnst mér súkkulaðidagatöl ákaflega skemmtileg. Það er hinsvegar eitt sem ég myndi taka fram yfir slíkt dagatal.




Naglalakksdagatal! Fullt af dásamlegum Ciaté lökkum. Vá hvað desember væri gleðilegur ef ég ætti eitt svona. Þetta myndi jafnvel spara mér nokkrar kaloríur líka. Ég kaupi mér nefnilega yfirleitt ekkert bara eitt súkkulaðidagatal. Ég kaupi eitt stykki þegar þau detta í búðir um miðjan nóvember. Það er étið upp til agna sama kvöld. Síðan kaupi ég mér svona tvö í viðbót í desember. Fer eftir því hvernig liggur á mér. 

Þrátt fyrir þennan fjölda af dagatölum á ég samt aldrei svo mikið sem mylsnu eftir upp úr miðjum desember. Ég get bara aldrei hætt þegar ég byrja. Ég er hömlulaus þegar kemur að súkkulaði. 


4 comments:

  1. ef ég ætti 85$ myndi ég kaupa þetta á stundinni á ebay!!

    Sigga

    ReplyDelete
    Replies
    1. ef ég myndi hreinlega þora inn á ebay þá myndi ég pottþétt kaupa þetta. en ef ég leyfi mér að fara að grúska þar þá fyrst fer ég á hausinn!

      Delete
  2. næs!! sjit ég held ad ég myndi "óvart" opna alla dagana strax!!! :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. ó já! ég myndi sko ekkert geta hamið mig ef ég ætti svona gersemi!

      Delete