Dec 4, 2012

Peysuhamingja.

Það þarf nú ekki mikið til að gleðja mig þessa dagana. Ég faðmaði næstum því póstberann í dag þegar hann færði mér glaðning sem ég pantaði frá LakkaLakk í síðustu viku.




Unaðsleg kósýpeysa. Ég ætlaði að mynda mig í henni til að sýna ykkur hana almennilega. En það verður að bíða betri tíma. Myndavélin er ekki að elska mig í augnablikinu. Bólur, prófljóta og baugar niður á brjóst. Ég er líka svo kolbiluð í skapinu að ég hef enga þolinmæði í að reyna að ná góðri mynd af mér. Rótin í hárinu nær niður að eyrnasneplum og ég held að ég sé hreinlega farin að rykfalla. Ég týndi að minnsta kosti tvö ló úr hárinu á mér áðan.

Klukkan 20:00 þann 7. desember næstkomandi eignast ég líf mitt aftur. Þá verður heldur betur kátt í höllinni. 


No comments:

Post a Comment