Dec 11, 2012

Óhollt jólafrí.










Þetta jólafrí er ekki að gera mér gott. Ég vafra um netið endalaust að leita mér að einhverju til þess að kaupa. Mig langar bara í allt - alveg sama hvað það er. Kaupsýkin er að hertaka hverja einustu taug í líkamanum á mér. Ég reyni að hugga mig við það að á morgun fer ég að vinna og mun ekki hafa tíma til þess að standa í þessari vitleysu.

Þessi hugsun huggar mig reyndar ekkert svakalega. Því um leið og ég fer að hugsa um vinnuna byrja ég sjálfkrafa að hugsa um allt sem ég ætla að kaupa mér í vinnunni. Jæja, ég verð þó allavega á launum meðan ég versla. Það hlýtur að vera plús.

Kannski splæsi ég á mig smá glingri í dag. Bara smá. Aðeins að gleðja og næra sálina.

No comments:

Post a Comment