Klukkan átta í morgun sat ég við eldhúsborðið og smurði eldgamla Converse skó með glimmeri.
Þarna er komin ein glimmerumferð yfir skóna og grútskítugu reimarnar farnar í ruslið. Núna vantar mig bara ööörlítið meira glimmer til þess að ég geti farið aðra umferð. Svo þarf ég að splæsa í nýjar reimar og þrífa þá dálítið.
Þá verður Guðrún Veiga ein hamingjusöm kona í glimmerskóm!
No comments:
Post a Comment