Dec 14, 2012

Uppáhald á föstudegi.

Um daginn pantaði ég mér sjampó frá Aveda. Sem er nú ekki frásögum færandi nema að ég fékk prufu af einhverju spreyi sem heitir Pure Abundance  með. Þvílíkt og annað eins kraftaverkasprey. Að minnsta kosti fyrir strákofann sem ég ber á hausnum.


Samkvæmt lýsingunni sem fylgir spreyinu á það að auka umfang hársins. Það á líka að auðvelda manni að greiða í gegnum hárið og þyngir hárið ekki eða stífir það - sama hversu miklu maður gusar yfir hausinn á sér. 

Þetta gerir svo ótrúlega mikið fyrir hárið á mér - það lítur út fyrir að vera helmingi þykkra og það helst meira ,,lifandi" allan daginn. Ég er virkilega hrifin af þessari vöru og er að panta mér stóran brúsa í þessum skrifuðu orðum. Þið getið lesið meira um það hér. Spreyið kostar rúmar 3000 krónur sem ég læt nú alveg vera. Aveda sendir líka frítt út á land - sem er ávallt stór plús!

3 comments:

  1. djöfull sem ég elska Aveda vörur. sjampó hárnæringu, andlitskrem og handáburð á diskinn minn. takk fyrir takk.

    í alvöru - handáburðurinn er það klikkaðasta sem ég veit um!

    ReplyDelete
  2. takk. núna er ég að panta handáburð. takk.

    ReplyDelete
    Replies
    1. ohh, verði þér að góðu. ég er að smyrja mínum á mig as we speak!

      Delete