Jan 23, 2013

Benefit They´re Real Mascara.

Ó, hjartans maskarinn sem ég pantaði mér af Ebay. Ég var búin að lesa hina ýmsu erlendu bloggara dásama þennan blessaða maskara þannig að ég varð að panta hann. Mig vantaði líka maskara þannig að þetta var að sjálfsögðu ekki tilgangslaus eyðsla.




Það er ákaflega erfitt að gera mér til hæfis þegar kemur að þessari nauðsynjavöru. Ég er alltaf að kaupa maskara en finn aldrei neinn sem gjörsamlega heillar mig. Ég og guli maskarinn frá Maybelline höfum átt alveg sæmilegt samband síðustu tvö árin - en bara svona sætt okkur við hvort annað, ekkert verið neitt brjálæðislega ástfangin. 

En nú hef ég fundið hinn eina sanna. Það er á hreinu. Þessi maskari er algjör dásemd!



Eitt stykki verulega ómáluð Guðrún Veiga. Hólímólí. Já og horfum fram hjá ólituðu augnbrúnunum. Þær eru ekki til umræðu núna.


Þarna er ég búin að skella tveimur léttum umferðum yfir augnhárin. Ókei - ég lagði augnbrúnirnar aðeins líka. Örlítil skítredding til þess að láta myndina koma betur út. 

Ég bara get ekki dásamað þennan maskara nógsamlega. Hann gerir allt sem góður maskari á að gera og meira til. Ég þurfti að vísu aðeins að læra á hann. Í fyrsta skiptið sem ég notaði hann klíndi ég honum út um allt því það kemur svolítið mikið úr burstanum. En ég er fljót að læra og núna erum við ákafir elskendur. Njótum hvors annars á hverjum degi.

Þessir maskarar fást ekki á Íslandi enn sem komið er. Það er hægt að kaupa þá um borð í flugvélum Icelandair á 2700 krónur.

Minn gullmola fékk ég á Ebay. Hann kostaði ekki nema 1409 krónur hingað kominn. Það er svo sannarlega gjafaverð fyrir maskara.

Hér má lesa það sem Pjattrófurnar segja um hann.

Þessi maskari fær mín meðmæli. Að eilífu. Amen.

8 comments:

  1. Geturu ekki pantað nokkra og selt ??? ;Þ

    ReplyDelete
  2. hahahahahaha. jú. best ég opni naglalakks/maskarasjoppu! ;)

    ReplyDelete
  3. Geturu ekki bent mér á seljarann á ebay, finn hann hvergi svona ódýrann og er orðin enn sjúkari að prófa eftir að hafa lesið þetta! ;)

    ReplyDelete
  4. heyrðu ég finn hann ódýrastan með free shipping hérna í augnablikinu: http://www.ebay.com/itm/BENEFIT-Theyre-REAL-Black-Mascara-Brand-New-Full-size-0-3-oz-Beyond-SALE-/330858603687?pt=US_Makeup_Eyes&hash=item4d08b5a4a7

    minn var á einhverja 11 dollara í desember. seljandinn var magic saturday minnir mig.

    ég leitaði samt bara mjög snögglega að þessu :) skal kíkja betur þegar ég kem heim í dag!

    ReplyDelete
  5. nei djók. þessi shippar ekki einu sinni til íslands. smá fljótfærni.

    skal kíkja betur :)

    ReplyDelete
  6. ANDSKOTINN! ég finn hann bara á 19 dollara núna! ég hefði átt að panta fleiri!

    en hann er hérna þessi á 19$ þú ert nú svo sem örugglega búin að rekast á hann ef þú hefur verið að leita.

    http://www.ebay.com/itm/Benefit-Theyre-Real-Mascara-Black-Full-Size-Free-Shipping-/121049832041?pt=US_Makeup_Eyes&hash=item1c2f21da69

    ReplyDelete
  7. Hefuru annars prófað make up forever smokey lash? Hann er oooosom! Allra uppáhalds maskarinn minn og ég er sko algjör maskarah*ra! ;)

    ReplyDelete
    Replies
    1. neeeeeeeei. en ég má ekki heyra svona komment þá er ég rokin í maskarakaup! hann er kominn á innkaupalistann!

      Delete