Jan 12, 2013

Góðar minningar.



Þegar ég var 19 ára fékk ég hina heimsfrægu Leoncie austur á Eskifjörð til þess að skemmta. Eins og myndirnar gefa til kynna þá kom okkur ansi vel saman. Ekki mín bestu Kodak-moment en þessar myndir gleðja mig engu að síður alveg ótrúlega mikið. Og munu gera það um ókomna tíð.

Hún gaf mér líka alla diskana sína áritaða. Sem ég geymi enn þann dag í dag - 9 árum síðar. Stundum hlusta ég meira að segja á þá. 

En bara þegar ég er komin á fjórða glas. Þannig að það má fyrirgefa mér það.

Neðri myndin var líka framan á debetkortinu mínu þangað til í sumar. Hún væri það örugglega ennþá ef Landsbankinn hefði ekki tekið myndakortin úr umferð. 

Já ég er aðdáandi.

No comments:

Post a Comment