Djöfulsins óréttlæti að ég sé ekki milljónamæringur. Ég verð líklega seint rík. Örugglega aldrei.
Ég var einmitt pungsveitt í vörutalningu í allan dag - reyna að afla smá fjár til þess að friða sálina. Þessi vörutalning fór fram í Lyfju. Yfirfull búð af naglalökkum og snyrtidóti. Ekki gáfulegasta umhverfið fyrir Guðrúnu.
Það er skemmst frá því að segja að ég kláraði laun dagsins med det samme. Ég var alltaf að koma auga á eitthvað sem ég hafði ekki rekist á þarna áður. Auðvitað gat ég ekki sleppt því að splæsa aðeins á mig.
Andskotinn.
No comments:
Post a Comment