Dálítið skemmtilegt og ansi marglitað þetta naglalakk. Ég hugsa að það kæmi betur úr yfir einhvern annan lit. Til dæmis svartan - svartur er góður með öllu glimmeri.
Ég var að reyna að mynda bara neglurnar sem líta mannsæmandi út. Þær eru nefnilega flestar á einhverju bölvuðu mótþróaskeiði í augnablikinu. Litlar, ljótar og fara endalaust í taugarnar á mér.
Ótrúlega frumleg uppstilling hjá mér. Upp við kaffivélina. Ég er augljóslega engin atvinnumaður þegar kemur að ljósmyndun.
Fínasta naglalakk. Það má alveg leika sér með það og setja aðra liti með. Aldrei of mikið af litum.
Naglalakkið fæst hér.
Það er enginn að gleyma að skrá sig í gjafaleikinn er það nokkuð? Þetta er síðasta skipti sem ég minnist á hann. Ég lofa.
Tæpir fjórir dagar til stefnu, ég dreg á laugardagsmorgun.
No comments:
Post a Comment