Hann er svo fáránlega fallegur. Og ég myndi sóma mér fáránlega vel í honum. Ég held að ég hafi meira að segja bloggað um þetta jakkatetur áður - svo mikið langar mig í hann.
Hann fæst hér. Það virðist bara vera hægt að fá hann upp í stærð 12.
Ö, ekki alveg mín stærð. Ætli ég þurfi ekki örlítið stærra númer. En það er einungis vegna þess að ég er herðabreið. Ekki feit sko. Bara herðabreið. Rifbeinin í mér eru líka undarlega breið. Ég er dálítið eins og kassi í laginu.
Fallegur kassi samt.
Ég stal myndunum hér.
Hann er til í Markaðstorgi Kringlunnar, á 6.000 á útsölu :)
ReplyDeleteGetur séð hér: www.facebook.com/MarkadstorgKringlunnar
óóóó, ég þangað!
Deletetakk fyrir!
Hún Lára kannetta!
ReplyDeleteó heldur betur!
Delete