Ég get varla horft á þessa galla án þess að fá aðsvif. Þvílíka hörmungin. Ég er alltaf að sjá fólk í þessu - þá er ég að tala um fullorðið fólk (sirka 18-25 ára). Ég get fyrirgefið börnum þetta sem vita ekki betur. En að fullorðin manneskja skuli láta sjá sig í þessu á almannafæri er algjörlega ofar mínum skilningi. Að klæðast þessu annarsstaðar en í einrúmi ætti að vera ein af dauðasyndunum sjö.
Ég skal alveg gefa grænt ljós á þessa galla sem einhverskonar kósýföt. Til þess að vera í HEIMA hjá sér. En ég færi ekki í þessu út fyrir dyr. Ekki svo mikið sem út á tröppur.
Fyrr myndi ég dauð liggja.
djöfulsin satans viðbjóður!
ReplyDelete(mig langar samt að læra í þessu, því mér er alltaf svo kalt þegar ég læri og mér líður svo illa þegar ég læri).