Góður dagur að baki. Ég er búin að drekka um það bil 15 rándýra kaffibolla og borða líkamsþyngd mína af sælgæti úr Hagkaups-nammilandi. Ég núllaði að vísu sælgætisátið út með því að borða Hagkaups-salatbar í kvöldmatinn.
Núna er ég örugglega með fullan rass af njálg eftir að hafa étið bæði úr nammibar og salatbar í dag.
En það er nú í stakasta lagi. Ég á nefnilega ný föt og nýja skó. Og fulla rauðvínsflösku.
Rauðvín og nýir skór gera allt betra. Meira að segja njálg.
ahh crap! Djöfull langar mig á útsölur!
ReplyDeleteþað er bara eitt við því að gera - GO GO GO!
Delete