Jan 8, 2013

The Body Shop.

Ég keypti mér alveg unaðslega varasalva í Body Shop um helgina.




Þeir voru á útsölu, að sjálfsögðu. Annars hefði ég auðvitað ekki keypt þá. Því ég er svo hagsýn - versla bara á útsölum. 700 krónur stykkið - ég læt það nú vera. Þeir lykta hreint út sagt dásamlega. Sem gerir það að verkum að ég er stanslaust að sleikja þá af vörunum á mér. 

Þessi rauði er meira að segja með smá lit í. Og hvíti er með glimmeri. Bara örlitlu glimmeri. Ekkert yfirdrifið. Eiginlega of lítið fyrir minn smekk. 

Mæli eindregið með þessum varasölvum. Ákaflega hressandi, ilmandi og bragðgóðir.

No comments:

Post a Comment