Ég ætla ekkert að hætta að ræða um útsölur. Nei aldeilis ekki. Þetta er þó sennilega síðasta útsölufærslan. Mitt margumtalaða eyðslubann gerir það að verkum að ég mun ei versla meira á næstu misserum. Alls ekki. Ég má það ekki. Það er bannað.
Fyrir eyðslubann fjárfesti ég hinsvegar í þessu stórfína gallavesti. Fékk það héðan á 50% afslætti. Maður getur nú ekki slegið höndinni á móti slíku tilboði. Ég var samt búin að minnast á þetta vesti áður. Mér finnst það bara eiga skilið aðra færslu - sérstaklega þar sem ég skarta því. Enda er ég eðalmódel.
Vestið er ennþá til hjá þeim - og fullt af öðrum gersemum á 50-70% afslætti. Svona fyrir þá sem ekki eru í eyðslubanni.
No comments:
Post a Comment