Egg. Mikið sem ég elska egg. Ég er eggjasjúk. Alla daga alltaf. Ég væri ekki í vandræðum með að stúta einum bakka af eggjum á nokkrum mínútum. Namm.
Ég splæsti á mig smá lesefni fyrir helgina. Ég veit fátt notalegra en að sötra nokkra lítra af kaffi á meðan ég glugga í falleg tímarit.
72% súkkulaði - af því það er nú alveg að koma helgi. Það besta við svona dökkt súkkulaði er að einn biti fullnægir manni alveg. Mmmm - láta bitann bráðna upp í sér. Best í heimi.
Hræódýrt dúllerí úr Húsasmiðjunni. Bráðnauðsynlegt til þess að gera fimmtudagstiltektina bærilegri.
Síðast en ekki síst - nýju naglalökkin mín. Ég pantaði þau af Ebay fyrir stuttu og þau bárust mér í dag. Undurfögur alveg hreint og gleðja mig mikið.
Ég elska fimmtudaga. Þeir eru svo dásamlega nálægt helginni.
No comments:
Post a Comment