Þetta ætla ég að reyna að tileinka mér. Frá og með núna. Ég leyfi mér alltof oft að líta út eins og ruslahaugur bara af því ég eyði megninu af tíma mínum heima hjá mér - lærandi.
Ég er ekki að segja að ég ætli að sitja við skrifborðið í kvöldkjól og úða yfir mig glimmeri. Nei ekki alveg. Meira svona að leggja mig meira fram við að gera mig sæta þó það sé ekkert sérstakt tilefni til þess.
Þetta hljómar kannski voðalega grunnhyggið.
Mér líður samt betur þegar ég lít vel út.
ahh, ég er svoleiðis í dag.. og sætí þokkabót. það gerist ekkert rosalega oft.
ReplyDeleteoh ég er öfundsjúk.
ReplyDelete