Já, ég skal læra að elska mánudaga. Málið er bara að girða sig í brók og taka fagnandi á móti vikunni.
Mitt markmið fyrir þessa viku er að klæða mig á hverjum degi. Ég geri ráð fyrir að þetta hljómi ekki mjög háleitt markmið í ykkar bókum.
Það er bara svo fjári gott að dröslast um á náttbuxunum allan daginn. Ó, almáttugur. Svo ég tali nú ekki um þegar maður leyfir sér að þvælast um brjóstahaldaralaus í risastórum bol líka. Þá eru sko jólin.
Það er mjög líklegt að ég hafi búið í hjólhýsi í fyrralífi, já.
Ég er ekki einhver rúmliggjandi sjúklingur sem klæðir sig aldrei. Nei, ástandið er ekki alveg svo slæmt. Ég sit bara og læri allan daginn. Og mér finnst vont að læra í fötum. Eða þið vitið, eðlilegum fötum. Það er best að læra á náttfötunum.
En það mun ei eiga sér stað meir.
Búin að klæða mig, búin að taka speglamynd - og það fyrir hádegi!
Áfram ég og áfram mánudagar!
hahaha.. Mikið er nú gott að vita af þér í fötum!
ReplyDeleteGangi þér vel að læra.. ;)
Kv. Ragna Lóa
ooog gangi þér vel að læra sömuleiðis! :)
Deletefinnst þér ekki? hahahahahahahaha. mér líður samt ekkert sérstaklega vel í fötum sko! ;-)
ReplyDeleteæj ég sé bara engann tilgang með því að vera í fötum þegar maður er heima að hanga/læra..
ReplyDeleteekki skemma þetta fyrir mér sæberg!
Deletegetur haft þemað á póstunum frá þér samt áfram speglamyndir.. bara hugmynd.
Deletejá. speglamynd á hverjum degi. af því þú ert skotin í mér!
Deleteheld bara að þú myndir græða rosa mikið af heimsóknum og athygli á bloggið.. that´s all!
Deleteroger that sæberg. speglamynd á áætlun þegar ég fer í föt.
DeleteÞetta er klárlega markmið vikunnar hjá mér...þú ert búin að smita mig af ebayinu og ekki ekki slæmt að fá ,, ég ætla að fara í föt í dag" smit líka....:)
ReplyDeletehahahahahahahaha. guð hvað er samt mikill léttir að vita að það séu fleiri sem fara ekki í föt á hverjum degi!
Deleteoh. elsku ebay já. ég hef ekki heimsótt hann í viku.
Deleteég þarf að fara að endurnýja kynni okkar.
oohhh svo er biðin svo löng....vona á hverjum degi að góssið sé að koma...en ekkert kemur:(
Deletebiðin er verst! ég er yfirleitt búin að steingleyma að ég hafi keypt eitthvað þegar þetta loksins skilar sér.
Deleteég er stolt af þér !
ReplyDeletego mondays
hahahahahahaha.
Deletesjáum til hvernig ég verð á næsta mánudag!