Mar 10, 2013

Identity Thief.

Ég horfði á mynd sem heitir Identity Thief í gærkvöldi. Agalega skemmtileg mynd.


Eitt atriði þótti mér þó sérstaklega skemmtilegt. Þess má geta að yfir sama atriði fékk sambýlismaðurinn kaldan hroll niður bakið og ælubragð í munninn.



Þið verðið að kíkja á þetta brot - það er bara 18 sekúndur. En þessar fáu sekúndur lýsa því ákaflega vel hvernig það er að ferðast með mér í bíl.

Ég er viss um að sambýlismaðurinn hefur íhugað það ansi oft að keyra ofan í næsta skurð þegar við erum á ferðalagi.

4 comments:

  1. Nei hættu nú alveg! Horfði líka á þessa í gær!

    ReplyDelete
    Replies
    1. hahahahahaha. oh, kannski erum við bara kvenkyns sálufélagar! ;-)

      Delete
  2. Ég er farin að halda það! Getum naglalakkað okkur og étið tyrkisk peber saman ;)

    ReplyDelete
    Replies
    1. nákvæmlega það sem ég var að gera í gærkvöldi - naglalökkun og molaát! ;-)

      Delete