1. Ég að þykjast vera agalega heilbrigð og sýna öllum á Instagram rosalega holla kvöldmatinn minn.
2. Heilbrigða lífernið stóð í um það bil tvo tíma - þá var ég búin að hreiðra um mig í sófanum með tæp tólf kíló af sterkum molum.
3. Rauðvínsglas á Reykjavíkurflugvelli. Í mínum huga eru flugvellir tímalaust svæði - það má drekka á þeim sama hvaða dagur er og sama hvað klukkan er.
4. Ég. Að taka speglamynd já. Í fína jakkanum mínum sem að mig langar mest til þess að sofa i.
5. og 6. Það er ekkert betra í heiminum en að kela við þennan mjása.
7. Úff, ég ætla ekki að segja ykkur hvað ég borðaði margar sneiðar af þessari bannsettu köku sem ég og Betty bökuðum um síðustu helgi. Oj bara.
8. Það sem ég geri á föstudagskvöldum. Drekk rauðvín og vafra um netverslanir.
9. Meira rauðvín já.
Ykkur er velkomið að fylgjast með mér og rauðvínsdrykkju minni á Instagram, @gveiga85.
No comments:
Post a Comment