Mar 11, 2013

Ný vika á nýjum skóm.



Guði sé lof að mér bárust þessir fínu skór í dag. Eftir alla geðshræringuna sem fylgdi bannsettri fiskiflugunni í morgun þá þurfti ég virkilega á þeim að halda. Svo ekki sé minnst á öll símtölin sem ég fékk frá sambýlismanninum í dag þar sem hann sagði mér ítrekað hversu geðbiluð ég væri og þetta hefði verið fluga en ekki rándýrahjörð. 

Þannig að já, ég átti þessa skó alveg fyllilega skilið.

Ég keypti þá í Gyllta kettinum - þar er einmitt 50% útsala á öllum skóm þessa dagana. Við látum ekki svoleiðis gylliboð ganga okkur úr greipum. Þið getið séð úrvalið á Facebooksíðunni hjá þeim.

Ef það er eitthvað sem gerir mánudaga bærilegri þá eru það nýir skór. 

Nýir skór á hverjum mánudegi? 

Ég ætti virkilega að íhuga það.

No comments:

Post a Comment