Ég rifjaði allavega upp kynni mín við þennan stórvin minn í dag.
Obbósí. Það þarf ekkert að ræða þetta. Kannski er ekki runnið af mér síðan á föstudagskvöldið. Sumt bara stenst ég ekki. Það vitum við öll.
Maskari, já. Sem fæst úti í næsta apóteki, ég veit það alveg. En hann kostaði mig bara tæpa 4 dollara á Ebay þannig að já. Svo fór sem fór.
Annar maskari. Hvað hefur hún að gera við tvo maskara gætuð þið mögulega spurt? Nei, við því er ekkert svar. Ég þarf ekkert að nota þá báða í einu. Ég rakst bara á þennan fyrir tilviljun. Ég notaði hann alltaf fyrir nokkrum árum. Þegar ég var ung og áhyggjulaus. Hérna í gamla daga.
Svo var hætt að selja hann á Íslandi og það var mér mjög erfiður tími. En ég get tekið gleði mína á ný því við munum sameinast aftur eftir fáeina daga.
Ó, þetta er alveg satt!
Ókei ég gæti grenjað og þú ein af fáum sem skilur sorg mína! Pöntunin mín á essie lökkunum frá feel unique kom aldrei í gegn því breskar síður eru hættar að senda naglalökk úr landi! Ég er brjál!
ReplyDeleteNEEEI!!
ReplyDeleteég samhryggist þér heitt og innilega - í fúlustu alvöru! oj bara. en svekkjandi! óóóóóó það þýðir að það er heldur ekki hægt að panta lökk af beautybay.com - hún er bresk! andskotinn.
Ég fór einmitt beint þangað og þau eru líka hætt þessu :( .. en þá er það bara ebay!!
ReplyDelete