Mar 4, 2013

Mánudagsmorgunn.



Ég keypti þennan dásamlega risabolla í Ikea um daginn. Morgunverðurinn verður talsvert skemmtilegri þegar hann er borinn fram í svona fallegu íláti. Það freistar mín líka hrikalega að fylla hann af kaffi og þamba úr honum. En ég læt það eiga sig. Í bili að minnsta kosti.



Það var að sjálfsögðu hafragrautur og hnetusmjörsslumma á boðstólnum hérna í morgun. Eins og alla aðra morgna. Hafragrautur er besta eldsneytið fyrir þreyttan og mjög mánudagsveikan líkama.

Jæja, ég þarf að kýla vömbina út af kaffi og kvelja sjálfa mig með ritgerðarskrifum.

Gleðilegan mánudag!

No comments:

Post a Comment