Jun 4, 2013

Síðustu metrarnir.


Nei það er ekki bjart yfir mér í dag. Síðasta prófið í meistaranáminu á fimmtudag og ég er bara alls ekki viss um að geðheilsa mín dugi þangað til.

Ég er eitthvað svo innilega búin með allt sem ég á. Námslega séð. Mig langar að skríða undir sæng og fara að skæla. Eða hringja í mömmu og fara að skæla. 

Fyrir svona tveimur mánuðum sagði ég systur minni að ég væri nú bara alveg til í að fara í doktorsnám. Einmitt. 

Kannski í næsta lífi.

4 comments:

  1. Gangi þér vel á lokasprettinum!

    ReplyDelete
  2. Þú rúllar þessu upp skvís :) gangi þér massa vel !
    kveðja frá seyðis,
    Halla Dröfn

    ReplyDelete