Mér finnst ákaflega notalegt að eiga morgunstund með sjálfri mér, drekka gott kaffi og rúlla yfir bloggin sem eru í uppáhaldi hjá mér. Þau eru þónokkur - þessi listi minn tekur breytingum í sífellu og gæti verið mun lengri. En þetta eru bloggin sem ég skoða hvað helst þessa dagana:
ShoeJungle - blogg sem hefur verið í bookmarks hjá mér lengi. Tíska og skór. Og meiri skór. Ég engist stundum um af öfundsýki þegar ég skoða þetta blogg.
Ástríður - einstaklega fallegt blogg. Fullt af innblæstri á öllum sviðum.
VeniVidiVisa - kaupsjúkar kokteiláhugakonur. Blogg að mínu skapi.
Heiðrún Hödd - draumaveröld fyrir fagurkera. Stútfullt af fallegum myndum, uppskriftum og innblæstri.
Hrefna Dan - töff týpa sem á ótrúlegt magn af flottum fötum.
Feel Inspired - falleg heimili og hönnun. Stundum græt ég yfir þessu bloggi og langar helst til þess að kveikja í ljóta húsinu mínu.
Trendnet - hver skoðar það ekki?
Ég skoða svo auðvitað falleg matarblogg eins og Evu Laufey, Ljúfmeti og Eldhússögur. Það eru alveg nokkur kíló utan á mér sem ég á þessum bloggum að þakka.
Eru einhver íslensk blogg þarna úti sem þið mælið eindregið með? Fyrir utan mitt blogg auðvitað.
hvað er þetta trendnet?
ReplyDeleteekkert sem þú hefur vit á.
Deletenú okei. þá pæli ég ekki meir í því. bæ
Deletehttp://djorfung.blogspot.com/
ReplyDeletehttp://stinasaem.blogspot.com/
http://margret.is./
http://alesif.blogspot.com/
http://jonakristin.blogspot.com/
http://irisbjorkb.blogspot.com/
http://uglasatakvisti.com/
http://www.skreytumhus.is/
http://www.asaregins.com/
...já ég veit ég er bloggnörd!!
kv.M
vúbb. nú hef ég nóg að gera í allan dag!
Deletetakk!
ææ en gaman að sjá mitt blogg á listanum þínum! :)
ReplyDeleteó það er algjört uppáhald! :)
Delete