Aug 28, 2013

Afkastamikill morgunn á Ebay.




Ég er að berjast um þetta þrennt á uppboði. Ég er bara ekki gerð fyrir svona uppboðsvesen. Ég er alltof tæp á geði - ég sit hérna og öskra á einhver andlitslaus notendanöfn sem sífellt eru að yfirbjóða mig. Aumingja tölvan fær líka sinn skerf af barsmíðum.


Þetta gullfallega eyrnacuff er hinsvegar orðið mitt. Það fæst hér.


Þetta fínerí er líka á leiðinni til mín. Fæst hér.


Ég splæsti nú í tvö svona. Á reyndar tvö fyrir en þau eru bara svo fín. Kostuðu líka agalega lítið. Eiginlega bara gefins, jájá. Fæst hér.

Jæja, ég má ekkert vera að þessu. Ég þarf að sinna þessum uppboðum. Og læra - ég þarf virkilega að hefjast handa við það fljótlega. Geri það þegar ég er búin að vinna öll uppboðin. 

Heyrumst.

2 comments:

  1. Sjitt, þú ert svo öflugur Ebay-ari. Geturu ekki tekið að þér að stunda Ebay fyrir okkur sem erum ekki gædd þessari þolinmæði og elju?

    ReplyDelete
    Replies
    1. hahahaha. jú mögulega gæti ég orðið svona personal shopper á ebay. djöfull væri það fínt. út með meistararitgerð og inn með ebay!

      Delete