Aug 29, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi.


Ég er nýlega búin að útbúa mér agalega notlegt leshorn hérna á heimilinu. Í augnablikinu er ég að lesa Fifty Shades þríleikinn. Í annað skipti. Já ég er pervert.


Ég hef ákveðin ilmkerti fyrir hverja árstíð. Þetta eru haustkertin mín. Lyktin af þeim er unaðsleg!




Vissuð þið að það er hægt að búa sér til eggjaköku í vöfflujárni? Það tekur innan við mínútu að elda hana ef blöndunni er hellt í sjóðheitt vöfflujárnið. Hérna má sjá ýmislegt fleira sem hægt er að nýta vöfflujárn í.


Ég var að reyna að næla mér í fáein rokkstig sem móðir og tattúveraði nestið hjá afkvæminu. Hann fékk að vísu ekki að fara með þetta með sér í skólann. Ég hefði mátt velja barnvænni mynd fyrir þessar framkvæmdir. En ég fæ plús fyrir viðleitni.


Þessi er á leiðinni til Íslands til þess að leika í bíómynd í næsta mánuði. Sambýlismaðurinn mun aldeilis sjá eftir að hafa leyft mér að hafa hann á listanum mínum. Listinn já - ég er með lista. Þar eru menn sem ég má eiga náin kynni við án þess að sambýlismaðurinn fari í fýlu - nú eða fari frá mér. Já. Nóg um það!

Eigið ljúft fimmtudagskvöld mín kæru.

2 comments:

  1. coolio banani :-) hlakka alltaf til fimmtudaga því það kemur alltaf svo skemmtó færsla hingað inn.

    xx
    b

    ReplyDelete
    Replies
    1. ó það fannst engum þessi banani kúl nema mér!

      Delete