Aug 30, 2013

Skál!


Þetta er virkilega ljúffengur kokteill. Eiginlega alveg hættulega góður - að minnsta kosti fyrir kokteilþambara. 


Í þennan drykk þarf:

Vodka
Lime
Eplasafa
Trönuberjasafa
Engiferöl


Glasið er fyllt af klökum og hálft lime kreist út í. Dágóð lögg af vodka fer í glasið þar á eftir. Síðan skvetta af bæði epla- og trönuberjasafa. Að lokum er svo fyllt upp í með engiferöli.



Ég fyllti glasið helst til mikið og þurfti að bjarga málunum. Ég læt ekki áfengan dropa fara til spillis, ó nei - slíkt mun seint spyrjast út um mig.


Algjör dásemd og heldur betur nauðsynlegur sjúss eftir langa viku.

3 comments:

  1. Elska hvad thu ert flink ad taka myndir :-) vaeri gaman ef thu myndir geta gert blogg thar sem tu gefur ljosmyndaratips !!

    X b

    ReplyDelete
    Replies
    1. ó jesús b. ég er algjör ljósmyndaamatör! gefðu mér fáeina mánuði í viðbót, þá skal ég græja ljósmyndatips fyrir þig! ;)

      Delete
  2. snilld, hlakka ekkert smá til :-D

    b

    ReplyDelete