Aug 24, 2013

Í dag.


Í dag klæddist ég þessum jakka. Hann gerir mig ákaflega hamingjusama. Ég gróf hann upp á markaði hjá Rauða krossinum á Eskifirði. Hann kostaði heilar 400 krónur! Nei mín hamingja er ekki dýrkeypt.


Í dag horfði ég á Notting Hill. Hún er alltaf jafn dásamleg.


Í dag bjó ég til uppáhalds salatið mitt. Það samanstendur af mæjónesi, eggjum og hangikjöti. Ég set mjög óhóflegt magn af því ofan á brauð og snæði síðan með bestu lyst.


Í dag súkkulaðihjúpaði ég jarðaber. Þeirra ætla ég að njóta í góðum félagsskap í kvöld.

Ég afkasta aldrei neinu um helgar. Nema í mesta lagi að klæða mig og éta fleiri máltíðir en mögulega getur talist hollt. Afskaplega notalegt. 

Ég vona að þið séuð að eiga dásamlega helgi. Og hjartans þakkir fyrir öll like-in, deilingarnar og fallegu orðin út af þessu og þessu! Hjartað í mér er búið að taka ansi mörg aukaslög þessa vikuna. 

Takk fyrir mig og takk fyrir að lesa!

Heyrumst fljótt.

4 comments:

  1. Flott skvís,
    vissi reyndar ekki af þessum "viðtölum" við þig - enda vissi ég fyrir löngu að þú værir snillingur :)
    hilsen frá seyðis,
    Halla
    ps haltu bara áfram að vera þú sjálf :)

    ReplyDelete
  2. Þú ert snilldar penni!
    Gaman að fylgjast með þér x

    Hrefna Dan

    ReplyDelete