Mikið sem þessi morgunn er búinn að vera unaðslegur. Núna sit ég södd og sæl úti á palli. Alein í kyrrðinni.
Tjah, fyrir utan geðsýkisleg hlátrasköll sem berast annað slagið frá stelpunum innan úr bústað.
Ég gæti mögulega setið hérna að eilífu.
Eða þangað til ég skelli mér í heita pottinn og hringi í Sigga Hlö!
Eigið ljúfa helgi.
Heyrumst!
pönnukökurnar líta aðeins of vel út !!! +
ReplyDeleteuppskrift?++xxb
Ég á nú ekki heiðurinn af þeim sko. En skal biðja um uppskrift, bara fyrir þig b! ;)
ReplyDeletethu ert los snillingos
ReplyDeleteb