Oct 17, 2013

Fimm hlutir á fimmtudegi.


Sólarlagið á síðasta föstudag var gjörsamlega guðdómlegt. Guðdómlegt!


Ah, ég greip þessa með mér í Tiger í dag. Ég á svo mörg svona sokkapör að þau eru óteljanleg. Þeir eru bara svo mjúkir. Og notalegir. Ég vildi að það væru framleiddir heilgallar úr svona efni. Þá gæti ég dáið hamingjusöm. Í heilgalla já.


Fyrst ég var á annað borð dottin í sokkakaup í Tiger þá stóðst ég þessa nú ekki. Grænir og glimmeraðir. Ég legg ekki meira á ykkur!


Æ já. Ég versla alltaf heilu og hálfu bílfarmana í Tiger. Þessi kaffibolli kom líka með mér heim. Hann kostaði nú ekki nema 300 krónur. Ég var einmitt að velta því fyrir mér um daginn að ég á nákvæmlega engin samstæð glös. Ég kaupi nefnilega alltaf bara eitt glas í einu og dáist svo að sjálfri mér fyrir sparsemi.


Þetta er dásamleg uppfinning. Samlokupokar til þess að setja í ristavél. Tvær brauðsneiðar, skinka og ostur. Ofan í ristavél og úr verður hrikalega góð samloka. Það var alltaf til svona heima hjá mér þegar ég var yngri og notaði ég þetta óspart. Fljótlegt og fitandi - tvennt sem ég kann vel að meta.

Ég sá svo svona poka í Hagkaup í dag og þurfti ekki einu sinni að réttlæta þessi kaup fyrir mér. Svo kom ég út í bíl og mundi að ég á ekki einu sinni ristavél. Já. Þetta voru góð kaup.


Jæja, mín bíður kvöldmatur og eftirréttur. Ókei, já og líka ómyndað rauðvínsglas. Það er nú einu sinni fimmtudagur. Það er svo gott sem komin helgi.

Heyrumst.

6 comments:

  1. Fallegt sólsetur indeed.
    Mig langar líka í svona poka, samt á ég ekki græjuna og þykir ostur ekki góður.
    (en græjan heitir brauðrist! "Ristavél" = ég fer að gráta...Alveg eins og þegar fólk segir þæginlegt og gleðinlegt haust)

    Góða helgi :)
    xoxo frá DK, heiðdís

    ReplyDelete
    Replies
    1. Þú ert uppáhaldið mitt Heiðdís.

      En ég get ómögulega vanið mig af því að segja og skrifa ristavél.

      Ekki gráta samt!

      Delete
    2. það segja ALLIR ...og skrifa Ristavél!!!..annað er bara vesen :)
      Þessa glimmersokka þarf ég að eignast... í öllum litum!!

      Delete
    3. Í Tiger með þig. Hræódýrir og til í fleiri litum!

      Delete
  2. Ég er líka sek um að segja og skrifa ristavél..haha! Þessir glimmersokkar eru í miklu uppáhaldi hjá mér, á græna og fjólubláa og þeir hressa, bæta og kæta öll möguleg dress! xx

    ReplyDelete
  3. Aaaa toast bags :) Þyrfti að næla mér í svona sokka, voðalega fallegir.

    ReplyDelete