Feb 11, 2014

Brjálæðislega einfaldar Nutellakökur.


Ó, þessar eru dásamlega einfaldar og hrikalega góðar.


Nutellakökur.

1 bolli af Nutella
Tæplega 1/2 bolli af sykri
1 bolli af hveiti
1 egg


Þessi liti molasykur er aldrei langt undan. Tæknilega séð. Hann fylgdist spenntur með mömmu sinni baka, vel staðsettur á eldhúsborðinu.



Smella Nutella í bolla. Smakka það. Auðvitað.



Þessu er hrært vel og vandlega saman.


Jú ég sé hverju þetta líkist. En ég er að verða 29 ára. Þess konar brandarar eru ekki viðeigandi fyrir konu á mínum aldri.


Svo búum við til litar kúlur úr deiginu. 


Pressum lítillega á þær með glasi.


Inn í heitan ofn á 175° í svona 6-8 mínútur.



Agalega gott svona á þriðjudagskvöldi.

Ekki fussa yfir öllum merkimiðunum í bókinni. Ég er fullmeðvituð um eigin bilun.

Heyrumst.

2 comments:

  1. Nammi þessar ætla ég að prófa við gott tækifæri
    Takk fyrir frábært blogg
    kveðja Silley

    ReplyDelete