Mar 25, 2014

Ég er skotin í.



Ég er skotin í Noodle Station. Svo skotin að starfsfólkið þekkir mig með nafni. Svona svipað og í Ikea. Ég þarf þó sennilega eitthvað að fara að breyta þessu neyslumynstri. Bara 39 króna núðlur úr Bónus og kjötbollur úr sparhakki framvegis. 


Ég er skotin í hvers kyns innpökkunarbrasi. Ég bæði elska það og hata. Eða ég elska það. En fullkomnunaráráttan, hún er annar handleggur. Ég get vel klárað tvær pappírsrúllur þegar ég stússast við eina gjöf. 


Ég er skotin í Kim og Kanye. Mér til varnar hef ég ekki séð svo mikið sem einn þátt af Keeping up with the Kardashians. Ég þekki Kim þess vegna ekkert. Þetta skot mitt er mjög grunnhyggið og byggt á útlitinu einu saman. 


Eh. Önnur játning. Já. Mér fannst þetta lag ekkert svakalega lélegt. Allt í lagi. Ekki skjóta mig af færi.


Ég er skotin í því að rúnta um Arnarnesið og láta mig dreyma. Ég passa mig samt á að draga aldrei sama fólkið með mér á rúntinn þangað. Það er auðvitað lykilatriði að vera ekki alltaf að sniglast þarna á sama bílnum. Ég læðupokast ekkert oft þarna. Annað veifið. Einu sinni í viku kannski.


Ég er skotin í þessari mynd. Hef alltaf verið það. Það eru svo margir hlutir við hana sem heilla mig. Sjálfsbjargarviðleitnin, mannátið, hræðslan, lífsviljinn - æ, svo margt. Hún er góð. Ég neita að trúa að það sé einhver þarna úti sem ekki hefur séð hana. 

Annars er ég eiginlega mállaus í augnablikinu. Ég er lítið skotin í því ástandi. 
Ég var að geispa, tala og snúa höfðinu áðan. Allt um leið. Kjálkinn á mér festist og er bara fastur. Ljómandi alveg hreint. Að opna munninn er svo gott sem ómögulegt. 

Þetta er ánægjulegt fyrir þær sakir að ég mun ekki troða í mig heilum poka af ostapoppi í kvöld samkvæmt venju. 

Virkilega óánægjulegt vegna þess að ég get ekki sungið með Kim & Kayne laginu sem ég er að dansa við í augnablikinu. Þetta er nú dálítið grípandi lag. Ekki?

Heyrumst.

4 comments:

  1. úppps svona kjálkavandamál geta verið erfið og leiðinleg!! :(
    Noodle station er algjörlega eðall!!!

    ReplyDelete
  2. Ég vil bara benda þér á það að þu þurftir alls ekki að setja "mér til varnaðar" með að vera skotin i Kimey, ég t.d viðurkenni það fúslega að ég elska þau saman, í sitthvoru lagi, þættina & nori ! þau eru mikið ahugamál hjá mér! & þakka þér fyrir þessa uppreisnaræru, ég met hana svo vel eftir höfnunina sem ég varð fyrir hérna fyrr á árinu. & lagið er líka mjog katsí. ja!

    p.s fólk sem segist ekkki þola þau elskar þau í laumi we all no that ;)

    ReplyDelete
  3. OMG, verð að kommenta núna (les by the way alltaf og finnst þú æði) Ég og vinkona mín fórum á Alive í bíó, ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur þrisvar. Á örugglega innan við viku, elska hana og þarf klárlega að fara að horfa á hana aftur. Allt of langt síðan síðast. Það er eitthvað við gæjana, eftir langan tíma í þessum hörmungum, orðnir brúnir og skeggjaðir og sexy. Og þegar Ethan Hawke bjargar þeim svo með því að skella sér yfir fjöll og firnindi...best.

    Kveðja Ösp

    ReplyDelete