Mar 27, 2014

Fimm hlutir á fimmtudegi.


Ég var látin vita af því í vikunni að pósturinn minn yrði ekki borinn út til mín lengur. Ástæða þess væri sú að póstkassinn hjá mér tæki hreinlega ekki við meiru. Ah, já - ég kíkti einmitt í hann síðast þann 15.desember síðastliðinn, áður en ég fór austur í jólafrí. 

Póstur hræðir mig. Maður veit aldrei hvað þessi bölvuðu umslög innihalda. Þetta er búið að liggja á borðinu hjá mér í þrjá daga núna. Þrír mánuðir af pósti. Allt enn óopnað. 


Ein af mínum bestu vinkonum var að koma frá útlöndum og færði mér þessar fínu kóknáttbuxur.

Kók á afar sérstakan stað í hjarta okkar beggja. Einu sinni fórum við tvær saman í bústað seinnipart á föstudegi. Við gripum meðal annars með okkur eina kippu af tveggja lítra kóki. Um hádegi á laugardag var allt kók í húsinu búið. 12 lítrar af kóki, já. Ofan í tvær meðalstórar manneskjur. Á innan við sólahring. 


Enginn sem stendur mér nærri fer til útlanda án þess að færa mér eitt spennandi í safnið. 



Dýrmæt eign. Áritaður persónulega til mín. Bara til mín. Frá henni. 


Það er fullkomlega eðlilegt að eiga tvö eintök af Radio Rapist Wrestler. 


Ég ræddi við ykkur um nýtilkomið kjálkavandamál í síðustu færslu. Ef ég geispa þá smell ég hálfpartinn úr kjálkalið. Mér skilst að þetta geti tengst því að ég er alltaf með fullan munn af tyggjói. Ég fæ mér aldrei bara eitt tyggjó. Ekki tvö, nei. Fjögur eða sex. Það er minn skammtur. 

Fólk sem þekkir mig tekur aldrei nokkurn tíma upp tyggjópakka að mér viðstaddri. 



Þið verðið að prófa Burger-inn í Hafnarfirði. 

Ég á alveg agalega erfitt með að bíða eftir mat. Bara eiginlega get það ekki. Ég tala nú ekki um þegar ég er það svöng að ég nánast íhuga að éta servíettuna utan af hnífapörunum á meðan ég bíð. 

Ef þið farið á Burger-inn þá er boðið upp á súpu og brauð á meðan beðið er eftir matnum. Ó, þegar afgreiðslukonan greindi mér frá þessu fyrirkomulagi. Almáttugur minn. Hún hefur sennilega orðið eilítið skelkuð við að sjá geðsýkislegan hamingjuglampann í augum mínum. 

Jæja. 

Ég er á Austurlandi í augnablikinu. Ætla að njóta þess í tæpan sólarhring til viðbótar.

Heyrumst fljótlega.

3 comments:

  1. Ó GUÐ Ó GUÐ !!!! Þessar náttbuxur; ég hef engin orð yfir þær;: mig skortir það orð sem lýsir þeim sem best - bíddu ég ætla að reyna !! GUÐDÓMLEGAR !!!!!!!!!! Úff það nær ekki einu sinni yfir þær.......... en ég reyndi þó ;o)

    Ég er líka svona á veitingastöðum....... óþolandi að fara með mér út að borða..... ég verð alltaf að vera með súkkulaði stykki á mér svo ég borði ekki helv. borðdúkinn á borðinu eða hvaðan af verra. hahahahhahaha - þetta með tyggjóið - þrjú eru hámark hjá mér..... :)

    ReplyDelete
  2. ókeijjjj þessar náttbuxur!!!!!
    maður á ekki að öfunda… en ó hvað ég öfunda þig af þeim!!!

    ReplyDelete
  3. Guð hélt ég væri ein í heiminum með það að geyma það að opna póst- pósturinn situr óopnaður mánuðum saman og póstkassinn stútfullur! Ég vil ekki vita hvað er inní þeim!!!

    www.thorunnivars.is

    ReplyDelete