Jun 22, 2014

Í gær.


Í gær prýddu þessar eitt eldhúsið í Ikea. Við skáluðum og blöðruðum eins og vindurinn. Jú og elduðum aðeins líka. Elsku Tara Brekkan förðunarfræðingur sá um að gera okkur sómasamlegar - ég legg til að þið kíkið á þessa síðu. Dásamlega hæfileikarík stelpa. 

Ég fékk líka að þukla á brjóstunum á Völu. Eða fékk er kannski ekki rétta orðið. Ég gerði það bara. 

Þið megið bíða spennt eftir þessum þætti. Hún kenndi mér einnig á Tinder þannig að ég verð sennilega gengin út næst þegar þið heyrið frá mér. 


Eftir upptökur brunaði ég á ljóshraða heim í Breiðholtið og riggaði upp einu stykki matarboði.




Þið getið séð fleiri myndir úr þessari gleði í Morgunblaðinu á næsta sunnudag.


Ég eyddi 18 klukkutímum á háhæluðum skóm í gær. Misbauð líkama mínum gróflega með þeim gjörðum. Enda hef ég ekki hreyft mig í allan dag. Ef ég væri hjúkrunarfræðingur hefði ég sett upp þvaglegg hjá mér. 

Ég er einmitt að ljúka við fjórða Pepsilítrann þannig að klósettferðirnar hafa verið ófáar og algjört óþarfa álag. 

Jæja. Ég þarf að klára þessa pizzu. Já og brauðstangasósuna mína. Ég panta alltaf eina slíka dollu og borða hana með skeið. Namm.

Heyrumst.

6 comments:

  1. Hvaðan er þessi óótrúlega flotti guli skýja-servíettuhaldari? :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Nú að sjálfsögðu kemur hann frá mínu öðru heimili - Ikea. Litlar 395 krónur!

      Delete
  2. Hvar færðu þessi bleiku doppóttu sem poppið er í??

    ReplyDelete