Sep 12, 2014

Föstudags.


Það er langt síðan við höfum hent í einn áfengan á föstudegi. Þessi er stórfenglegur. Enda rauður á lit. Þið vitið væntanlega hvert helsta innihald hans er.

Í þennan þarf:

Börk af lime, mandarínu og sítrónu
Frosin brómber
Sprite
Trönuberjasafa
Rauðvín - já, Ó, já.


Fullt af frosnum brómberjum í glas.


Nóg af berki saman við. Afar smekklega og pent skorið hjá mér.


Trönuberjasafi, rauðvín og Sprite í jöfnum hlutföllum. 


Það er ljómandi gott að henda fáeinum mandarínulaufum ofan í glasið líka. Kreista þau örlítið í leiðinni.



Note to self: Ekki fara í hvítar götóttar gallabuxur þegar lappirnar á þér eru hvítari en helvítis buxurnar. Ekki svo smart. 

Eru ekki annars allir á fullu að gerast heimsforeldrar? Síminn er 562-6262.
Áfram gakk. 

Heyrumst.

2 comments:

  1. Þetta eru ekki tröppurnar i Breiðholti .. !! mig grunar að þú sért ekki stödd þar ... & hafi ekki látið mig vita um það ... just sayin ..

    ReplyDelete
  2. Hahaha lol á buxurnar !!! Ekki margir sem púlla off hvítar gallabuxur og hvað þá með rauðvín í hönd !!!!! Góð Blanda gleðilegan flöskudag vinan ...🍸🍸🍸🍸🍸🍸

    ReplyDelete