Jæja. Ég loksins hlunkaðist til þess að draga í gjafaleiknum mínum góða. Eða mínum og Vila.
Uppáhalds flíkin mín úr Vila. Glitrandi bleikur samfestingur. Opið bak og ég er eins og rússnesk fimleikadrottning þegar ég skarta honum. Sver það.
Já. Þið viljið væntanlega vita hvaða tveir lesendur eiga 10.000 króna gjafabréf í þessari stórfínu búð.
Já takk og til hamingju með þessi tvö ár :) Búin að lesa hverja eina og einustu færslu, hvílíka snilldin sem þú ert! Sólveig Bergmann sab28@hi.is
Til hamingju með tvö árin! Klara Lind Gylfadóttir, klaralindgylfa@gmail.com :)
Sólveig Bergmann og Klara Lind - til hamingju. Ef þið kjósið að afþakka gjafabréfin þá þigg ég þau með þökkum.
Þið fáið tölvupóst innan skamms með nánari upplýsingum.
Þið hin. Eða hinar. Takk fyrir þátttökuna. Ég las hvert eitt og einasta komment og þótti afar vænt um þau. Eða flest sko. Ekki kommentin ykkar sem skilduð bara eftir nafn og tölvupóstfang. Þau voru ekkert skemmtileg.
Heyrumst fljótlega.
No comments:
Post a Comment