Það er fundið. Besta rakakrem í heimi. Mögulega það ódýrasta líka. Tæpar 1500 krónur.
Ástandið var bagalegt hérna fyrr í vetur. Það virkaði ekkert. Ódýrt, dýrt - skipti engu. Ég hef líklega prófað hvað flest krem undir sólinni. Ég vann lengi í apóteki. Þar var starfsmannaafsláttur og ég fékk aldrei krónu útborgað. Átti hins vegar rosalega mikið af kremum. Og ilmvötnum. Og augnblýöntum. Það er önnur saga.
Ég las um þetta undrakrem frá Decubal á blogginu hennar Ástríðar. Ákvað að eyða enn einum helvítis þúsundkallinum. Voilá - ég er eins og nýbónaður skalli. Í andlitinu sko. Glansandi fín.
Ég ætla ekki að segja ykkur hversu mörgum dollum ég stúta af þessu á viku. Hnetusmjörsneysla mín hefur þurft að lúta í lægra haldi undanfarið. Ég bara get ekki hætt.
Ég var eitthvað utan við mig (þá sjaldan) í Krónunni fyrir ekki svo löngu. Hélt að ég væri að teygja mig í vel mæjónesað salat í svipuðum umbúðum. Tók þetta svo upp úr pokanum þegar ég kom heim. Smakkaði. Féll kylliflöt.
Já. Ég borða hummus sem sagt svona. Smyr á skinku. Rúlla upp. Sælir eru einfaldir.
Ég borðaði einmitt heilt skinkubréf í kvöldmat áðan. Jú, unnar kjötvörur og allt það. Ég veit. Ætla að hætta að borða þær eftir áramót. Sagði enginn, aldrei.
Óóó. Ég er komin um borð í flaggskipið. Ég játa mig sigraða.
Mér til varnar þá voru þeir á útsölu. Legg til að þið fylgist með versluninni Módern á Facebook. Þar eru oft stórfín tilboð. Og stórkostleg þjónusta í sjálfri búðinni. (Nei, ég fékk ekki greitt fyrir þessi meðmæli. Ekkert. Nada. Nothing). Ég er bara afar veik fyrir góðri þjónustu. Og hvers kyns tilboðum.
Gengur Herbert Guðmunds ekki í hús og selur geisladiskana sína? Og Gylfi Ægis líka?
Viljið þið fá mig í kaffi?
Heyrumst.
Hummusinn vibbagóður, et hann með ristuðu jacobs pítubrauði.
ReplyDeleteHefuru prufað rjómaost og grænan aspas rullað inn í skinku?? Mega nice
Kv sigrún
Ég hef líka oft verið með svona þurra húð á veturna og prófað mörg krem. Fann svo eitt frá Garnier í USA í vor og prófaði. Mögulega besta krem sem ég hef prófað. Þoli ekki svona krem sem skilja eftir sig svona ''fituga'' og þétta áferð á yfirborðinu. Þetta krem er með svona aloe vera áferð og gefur mjög mikinn raka. Smýgur inn í húðina og skilur ekkert eftir nema ferskleikann á yfirborðinu. Hef ekki séð þetta hérna heima, en hef pantað þetta af ebay. Kostar ekki mikið! :D
ReplyDeletehttp://1.bp.blogspot.com/-lf6sPhyzeK4/UY3ZrFwH6wI/AAAAAAAAAKo/8lZfb26-Ff8/s1600/Kota+Kinabalu-20130511-04684.jpg
Ég nota þetta líka, besta krem sem ég hef fengið! Hægt að fá það í Bónus á 900 kall :)
DeleteÞetta decubal krem er snilld á þurra húð, já eða bara húð yfir höfuð.
ReplyDeleteÁ slæmum dögum nota ég líka intensive moisturising cream frá Bláa lóninu sem er ætlað á líkamann, en virkar fínt á þurra andlitið mitt á veturna og eiginlega bjargar mér.
Bláa lónskremið er reyndar rándýrt, en ég er með einhverja svona semi stóra prufu sem fer bara á andlitið en ekki líkamann svo það dugi út veturinn.
Snilldar rakakrem! Gerir reyndar ekkert annað en að veita raka þannig að það væri kannski ágætt að nota serum með, en ég elska kremið og verðið á því!
ReplyDelete