Aug 17, 2015

Með Maltesers, myntukroppi & Daim


Þá sjaldan sem líkami minn kallar á súkkulaði á mánudegi. Skrautleg nótt að baki hérna á Gunnars. Afkvæmið rúllaði sér á fætur um fjögurleytið. Til þess að hafa þvaglát. Eins og maður gerir. Snýr hann svo ekki aftur inn í herbergi til min, þar sem hann vermir pabbaból. Með harmkvælum. Og á hlaupahraða á pari við Usain Bolt á góðum degi. 

,,Það situr gráhærður maður á stólnum inni í stofu!"

Ég er vissulega meðvituð um hvert hlutverk mitt er sem foreldri. Það er ég sem á að hugga, halda utan um og veita öryggi. Svona meðal annars. Það átti sér hins vegar ekki stað í nótt. Svo langt því frá. Í öllum látunum hafði afkvæmið skellt svefniherbergishurðinni. Þannig að þarna sátum við. Bak við luktar dyr. Með gráhærðan mann inni í stofu. Afkvæmið vælandi. Ég alveg að fara að væla. Sturluð af hræðslu. 

Fyrstu viðbrögð mín voru að sjálfsögðu að hringja í sambýlismanninn. Ég áttaði mig síðan rólega á því að hann getur hvorki lúskrað á innbrotsþjófum eða sinnt hlutverki draugabana staddur einhversstaðar á Svalbarða. Eða hvar sem hann er.

Það var að duga eða drepast. Ég vafði mig vandlega inn í sængina. Greip lítið notað handlóð með mér - svona ef það kæmi til ryskinga við eldri borgarann. Ég er jú alltaf við öllu búin. Með mjög rökrænan þankagang í öllum aðstæðum. 

Löng saga stutt: Ég opnaði hurðina. Rétt sá með öðru auganu út um sængina. Sem ég var vel vafin inn í. Það var enginn inni í andskotans stofu. Ekki ummerki um nokkurn mann. 

,,Ó, kannski hefur mig verið að dreyma. Ég er ekki viss."

Takk kæra afkvæmi. Þú virðist vera búinn að gleyma þessari uppákomu. Ekki ég. Gangi mér vel að sofna í nótt. Gangi þér vel að bora þér aftur inn í erfðaskrána mína. 


Jæja. Ég bjó til popp í morgun. Eftir annríkið í nótt. 

Hrikalega gott popp. Með því betra sem ég hef gert. Sver það. 

Með Maltesers, myntukroppi & Daim

50 grömm Stjörnupopp
150 grömm rjómasúkkulaði
lúka af hvítum súkkulaðidropum
1/2 poki Maltesers
100 grömm Daim
1/4 poki Nóa kropp með piparmyntubragði



Söxum Daim-ið rosalega smátt.



Söxum Maltesers-kúlurnar gróflega.


Fleygjum dálitlu Nóa kroppi á skurðarbrettið líka. Einnig saxað gróft.


Það þarf gæðasúkkulaði í þessar framkvæmdir.


Bræðum gæðin. Ásamt lúku af hvítu súkkulaði.


Sullum súkkulaðiblöndunni yfir poppið.


Hrærum.


Skvettum allri dýrðinni út í skálina.


Hræra meira. 

Fleygjum þessu svo inn í ísskáp í góðan hálftíma.


Jú, ég er rosalega sæt svona nývöknuð. Að sleikja allar skeiðar og skálar sem notaðar voru í þessar framkvæmdir.


Algjört hnossgæti. Alveg par exelans.

Heyrumst.

Aug 14, 2015

Stutt stopp


Sambýlismaðurinn kom heim í stutt stopp í dag. Rétt rúmlega tólf tíma. Ég nældi mér í nýjan kjól að því tilefni. Ókei, ég keypti kjólinn að vísu þremur dögum áður en ég hafði hugmynd um að hann væri á landleið. Mátti reyna. 


Kjóllinn kemur af sömu slá og allir mínir kjólar. Eða 98% af þeim. Uppáhalds slánni minni. Sem stendur inni í Gyllta kettinum. Á henni hanga eingöngu vintage kjólar. Sem allir kosta þrjá þúsundkalla. 


Sambýlismaðurinn var búinn að taka tæplega tvö skref á þurru landi þegar ég var farinn með hann hálfa leið til Keflavíkur. Út úr mígandi rigningunni. Til þess að taka myndir. Af fína kjólnum mínum. 

Ég þurfti nú ekki að snúa mikið upp á handlegginn á honum. Hann er mín helsta klappstýra. Bloggklappstýra. Gerir allt til þess að aðstoða mig. Svo er líka uppáhalds ísbúðin hans í Hafnarfirði, Og honum finnst heldur ekkert skemmtilegra en að keyra svolitlar vegalengdir með mér. Það lítur svona út. Sirka:



Kona sem getur ekki gengið á háum hælum á jafnsléttu á ekki að skrölta á háum hælum út í eitthvað helvítis hraun. 


Þessi kjóll sko. Æðislegur. Þó ég segi sjálf frá. 

Þið finnið mig bæði á Snapchat & Instagram - gveiga85.

Heyrumst.

Aug 13, 2015

Fimm hlutir á fimmtudegi


Ég fór í Hagkaup um daginn. Til þess að kaupa ljósaperu. Kom út með náttslopp. Enga ljósaperu. Bölvað vesen að fá F&F alltaf í andlitið um leið og maður gengur inn í Hagkaup. Í afar sakleysislegum erindagjörðum. 


Oh, hann er svo mjúkur. Mjúkur eins og ofnbakaður Camembert. Með mangó-chutney. Mmm. 


Æ, ég keypti ekkert bara náttslopp. Líka náttbuxur. Ég er svo veik fyrir blómamynstri. Svo hræðilega veik. Og þær voru líka ódýrar. Og svo sykursætar. Og mig vantaði náttbuxur. Og ég er búin að vera lasin. Og hef ekki farið úr þessum fötum í þrjár vikur. Og. Og. Og. 

Þetta voru góð kaup. 

Hvað er búið að vera að hrjá mig? Eitthvað ferlega flókið. Allt í einhverju volli í kviðarholinu. Það rofnaði eitthvað. Blæddi inn á eitthvað. Bólginn eggjastokkur. Það er verið að vona að þetta gangi til baka án inngripa. Kannski er ég best geymd svona bara. Það er að minnsta kosti fjári langt síðan að ég hef bloggað fjórum sinnum í sömu vikunni. 

Ég og aðstoðarlæknir minn, Dr.Google, erum vissulega búin að dauðadæma mig oftar en einu sinni á þessu tímabili. Sérstaklega þar sem það tók óratíma að finna út hvað var að. 


Þarna var ég á morfíni. Með draumkenndan svip að dást að nýju náttfötunum mínum. 


Nýjasta morgunverðarblætið. Keaskyr með kókosbragði. Nektarínur. Jarðarber, Kiwi. Hampfræ. Og chiafræ. Myndin er uppstillt. Verulega uppstillt.



Svona lítur þetta almennt út.


Ég var að vanda mig svo mikið við að skera ávextina. Fyrir þessa uppstilltu myndatöku. Skar mig þrisvar. Á sama puttanum. 


Fáránlega góðir varalitir. Með stórkostlega endingu. Ég er síétandi og drekkandi. Og þoli þess vegna ekki að vera með varalit. En þessir haldast á, sama hverju ég er að troða í andlitið á mér.


Svo eru þeir líka svo fallegir. Og ég. Ég er líka falleg.


Ég er mjög hrifin af þessum brúna. Lætur mér líða eins og Kim Kardashian. Hún er stundum með svona nude varaliti sko. Ekki það að ég viti eitthvað um hana. Eða fylgist með henni. Og Kanye. Og Easton litla sem hún ber undir belti. Og North. Sem æfir ballet. Og á píanó. 


Guð á himnum. Þetta súkkulaði. ÞETTA SÚKKULAÐI.

Fæst í Ikea. Í litla helvítinu sem matvörubúðin þar er. Ég hata hana.


Þetta er samt besta súkkulaðið. 


Ekkert að því að éta 1100 kaloríur á einu bretti Guðrún Veiga. Ekki neitt. 

Jæja, sambýlismaðurinn er væntanlegur í tólf tíma stopp. Ég þarf að fara að kaupa þessa ljósaperu. Það er ljóslaust á baðherberginu. Búið að vera það í góðar þrjár vikur.

Fjandinn verður líklega laus ef hann kemur heim í myrkvað baðherbergi. Hann á nefnilega eftir að eyða átta tímum af þessum tólf í að greiða sér. Give or take. Ef ég þekki hann rétt. Þessa elsku.  

Heyrumst.

Aug 11, 2015

Svitaholur


Kræsilegt umræðuefni, ég veit. Við skulum samt aðeins fara þangað. 

Ég er ekki með svitaholur. Ég er með svitagíga. Sérstaklega í kringum nefið. Á slæmum dögum minnir þetta einna helst á einhverja gígaþyrpingu við Mývatn. Eða bara jarðvegsskemmdir. Eftir utanvegaakstur. Allt holað og farið til helvítis. Fólk á örugglega stundum í erfiðleikum með að átta sig á hvað eru nasir og hvað eru svitaholur þegar það horfir framan í mig. 

Er ég að ýkja?

Já.

Það borgar sig alltaf að deila með tveimur í allar mínar lýsingar. Það segir mamma mín. Ég er mjög hástemmd. Og á það til að ýkja þegar ég er að lýsa einhverju. Bara örlítið. Allar frásagnir þurfa krydd. Dálítið bragð.

Engu að síður. Ég er með stórar svitaholur. 


Ég keypti þennan andlitsskrúbb um daginn. Þegar ég og afkvæmið fórum til Ameríku. Eins og hann kallar það. Okkar Ameríka er í Kópavogi. Verslunin Kostur nánar tiltekið. Við förum reglulega þangað. Til þess að kaupa skrýtið gos. Og allskonar Jello. 

Ég nota þennan skrúbb í sturtunni. Á hverjum degi. Bara laust. Blíðar strokur. Og ég sé ótrúlegan mun á jarðvegsskemmdunum. Gígunum mínum. 

Ég hef prófað ýmislegt í þessari útrýmingarherferð minni gegn svitaholum. Fátt sem hefur borið sýnilegan árangur. Tjah, þegar ég segi ýmislegt þá meina ég að sjálfsögðu fullt af ódýru drasli. Það er einfaldlega minn stíll. Ég hef óbilandi trú á því ódýra. 


Góður skrúbbur. Virkilega góður. Ódýr líka. Auðvitað. Fæst í Kosti.

Sullenberger sendi mér vöruna ekki sem sýnishorn. Ég borgaði fyrir hana með einum beinhörðum Brynjólfi. Og einhverjum fjórum tíköllum. Að mig minnir. 

Heyrumst.

Aug 10, 2015

Dögurður á Public House


Ég hef margsinnis reynt að tæla sambýlismanninn með mér í dögurð. Já, ég ætla að nota orðið dögurður. Ekki brunch. Dögurður er meira lekker. Hljómar svo fágað. 

Burtséð frá fágun og lekkerheitum þá höfum við svolítið ólíkar hugmyndir um dögurð. Ég vil fara út og láta aðra gefa mér að borða. Sambýlismaðurinn vill vera heima. Og borða beikon og bakaðar baunir á brókinni. 

Sem er ágætt annað veifið. Og svolítið okkar stíll. Við erum fólk sem borar stundum í nefið. Og borðum matinn okkar á brókinni. Stundum borðum við kvöldmat. Og göngum ekki frá eftir hann fyrr en daginn eftir. Sjaldgæft þó. En hefur skeð. 

Ehm, að vísu ekkert sérstaklega sjaldgæft þegar sambýlismaðurinn er á sjó. En það er allt önnur saga.

Annað slagið kemur fyrir að sami þvotturinn þarf tvær umferðar í þvottavélinni. Af því ég gleymi honum þar í viku eftir fyrstu umferð. Ég á þvott á snúrunni niðri í sameiginlega þvottahúsinu. Sem ég hengdi upp í janúar. Reyndar bara taupoki og ósamstæð koddaver. En samt. 

Ég brýt líka sárasjaldan saman þvott. Við fjölskyldan göngum bara í sameiginlega fataskápinn. Sem er á stól í stofunni. Þar sem ég grýti þurrum þvotti. Ég á ekki straujárn. Og þríf helst ekki fyrr en ég sé skít. 

Já. Nóg um mitt ekki svo fágaða og lekker heimilislíf. Við fórum í dögurð. 



Ég fékk mínu framgengt. Við fórum í föt. Hrein meira að segja. Og fórum út úr húsi. 

 


Við skröltum á Public House Gastropub sem er hérna í næsta nágrenni við okkur. Á Laugavegi 24 nánar tiltekið. Þvílíka hossandi hamingjan sem þessi staður er. Matseðillinn þar einkennist af smáréttum. Sem þýðir að ég gat pantað sjö diska. Án þess að særa blygðunarkennd viðstaddra. 



Já. Sál mín söng. Rassinn stækkaði lítið eitt. Sambýlismaðurinn sparkaði ítrekað í mig undir borðinu. Af því ég sleppti út einni unaðsstunu. Eða tveim. Og gerði mig líklega til þess að sleikja diskinn minn. Eða bara alla diskana. Hans líka.

 



Þessar sætkartöflufranskar. Guð á himnum. Stundum dreymir mig um þær. Blauta drauma. Djók. Eða já. Næstum. 


Ég get ekki mælt nógsamlega með þessum stað. Þetta var í annað skipti sem ég dett þarna inn. Og svo sannarlega ekki í það síðasta. 

Ég þarf að kynna mér hvort það sé í boði að fá þessar franskar í take-away. 

Uss, djöfull sem við erum þá að dansa. 

Heyrumst.

Aug 9, 2015

Guðrún Veiga verslar á netinu


Sem er ekkert nýtt. Nema núna gerði ég svo skratti góð kaup. Eða já. Ég geri samt alltaf góð kaup. Þessi komast þó í topp tíu. Fá tólf stig. 

Um daginn var ég að fróa sálinni yfir umræðum á Barnalandi. Eða Bland.is eins vefurinn heitir víst. Ég slysaðist þangað inn. Eftir að hafa gúgglað sjálfa mig. Eins og maður gerir. Áður en ég vissi af var ég farin að skoða smáauglýsingar. Sem ég hefði sennilega ekki átt að gera. Af því ég er búin að vera að íhuga að flytja til Njarðvíkur allar götur síðan.

Já. Ég fann einbýlishús til leigu. Með sólpalli. Og amerískum ísskáp. Og leiguverðið var það sama og á eldgömlu greni sem ég skoðaði hérna í miðbænum fyrir stuttu. Búsetu okkar hérna á Gunnars lýkur þann 1.desember. Vissara að hafa allar klær úti strax. 

Ömurlegur árstími til þess að flytja. Desember. Ég sem byrja alltaf að skreyta í október. Jólaskreyta. Jæja, ég verð þá bara að gera það tvisvar í ár. Að vísu skreyti ég yfirleitt oftar en einu sinni. Jólaskrautið er nefnilega svo lengi uppi að ég verð leið á því. Þannig að ég skipti stundum um liti og svona. Eitt árið skreytti ég jólatréð fjórum sinnum. Verslaði óteljandi bílfarma af jólakúlum. Í öllum regnbogans litum. Sambýlismaðurinn henti mér næstum út. 

Já, ég var að fara að tala um reyfarakaupin sem ég gerði á Bland.is. Alveg rétt.


Ég keypti fjórar Iittala skálar. Sem eiga að heita notaðar. En eru alveg eins og nýjar. Hvað borgaði ég? Ég borgaði þrettán þúsundkalla. Og alveg spriklandi sátt með það. 


Ókei. Mögulega er þetta ekkert móðins lengur. Hvað veit ég. Kannski eru þessar skálar bara á pari við öskubakka í dag. Nah, varla. Og þó, nýjasta eintak mitt af Húsum og híbýlum er síðan 2008. Svo á ég nokkur síðan á tíunda áratugnum. Sem ég verslaði í Góða hirðinum. Bara af því að mig langaði að eiga svona töff bunka af tímaritum. Og ég tímdi ekki að splæsa í ný.

Ég hef alltaf verið svolítið sein að öllu. Alltaf síðust í mark. Alltaf kosin síðust í liðið. Alltaf síðust að rífa upp veskið og kaupa það sem þykir kúl hverju sinni. 

Gildir einu. Þær eru fallegar. Og ég hífandi hamingjusöm með kaupin. 

Ef þú ert að lesa þetta kæri sambýlismaður. Einhversstaðar við strendur Rússlands eða hvar sem þú ert. Ekki froðufella. Þetta voru góð kaup. Eiginlega fjórar skálar á verði tveggja. Hah, eins og að vinna í lottói. 10 þúsundkall. Þú veist, ef við námundum. 

Jæja. Nóg í bili.

Þið finnið mig bæði á Instagram & Snapchat - gveiga85.

Heyrumst.