Ég hef brennt mig á því áður að kaupa eitthvað sem heitir Cappuccino fyrir Senseo-vélar. En á þessum pakka stendur stórum stöfum NEW RECIPE! Þannig að ég lét auðvitað freistast, fullviss um að þetta væri miklu betra en allar hinar tíu tegundirnar sem ég hef prófað af þessu í gegnum tíðina. Ó nei! NEW RECIPE - hvílík blekking! Þetta er piss.
Hér má sjá viðbrögð mín við fyrsta sopanum (myndin er sviðsett). Mikil vonbrigði. Ekki það að ég hafi búist við því að fara að framleiða quality cappuccino með Senseo-vél. Ég bjóst nú samt við meiru. Þetta var dálítið eins og að drekka vatnið sem fólk lætur stundum renna í gegnum kaffivélarnar sínar til þess að hreinsa þær. Mæli ekki með að þið prófið. Nema að ykkur þyrsti í kaffi sem minnir á piss.
haha yndislegt.. jæja mjög ánægð með að lesa þetta hér og sjá viðbrögð þín sviðsett, hef nú ekki lengur áhuga á að kaupa þetta
ReplyDeleteekkert verra en þetta senseo cappochino rusl ARRG
ReplyDeletekv. Námsmaður sem þarf GOTT kaffi
Sigga.