Myndirnar gera því bara alls ekki nógu góð skil. Já og það glittir ennþá örlítið í bleikar leifar frá síðustu naglalökkun - það var fjandanum erfiðara að ná því af!
En naglalakkið er svona eiginlega grængullglimmerað - ef þið skiljið hvað ég á við. Það er frá Alessandro og það sem heillaði mig mest er hvað það var fljótt að þorna. Sem er gríðarlega stór kostur fyrir óþolinmóðar skessur eins og mig. Það þarf samt tvær umferðir en það skiptir nákvæmlega engu máli í þessu tilfelli því naglalakkið þornar nánast um leið og það kemur á nöglina.
Liturinn sést talsvert betur á þessum myndum af naglalakkinu sjálfu. Marvelicious Dream heitir lakkið ef einhverjum dettur í hug að leyfa sér aðeins. Ég er voða ánægð með það. Fallegur litur og góður slatti af glimmeri - meira þarf ég ekki.
hey! ég á lika svona! gríðarlega ánægð með það!! ;)
ReplyDeleteað sjálfsögðu! great minds think alike! ;-)
Delete