Nov 22, 2012

Jólapeysur.






Oh, hvað mig langar í eina kósý jólapeysu. Þó það væru tvær. Það væri nú ekki dónalegt að skarta einni svona fyrir framan arininn og súpa jólaglögg. Ég á reyndar ekki arinn. Og hef aldrei smakkað jólaglögg. Ég er samt alveg að sjá þetta fyrir mér - og ég sé ekki betur en ég myndi taka mig hrikalega vel út í einni af þessum peysum! 

Það er verst að ég myndi pottþétt drekka yfir mig af jólaglöggi ef ég smakkaði það á annað borð. Þá lægi ég bara áfengisdauð fyrir framan arininn í nýju peysunni minni. Ég er líka svo einstaklega seinheppin að það myndi pottþétt kvikna í mér. Nei það er líklega best að við fjarlægjum bara arineldinn og jólaglöggið út úr þessari jöfnu. Það myndi ekki hafa neitt gott í för með sér.



No comments:

Post a Comment