1. Jólamandrínur - ótrúlega gómsætar. Nema þegar maður borðar 16 mandarínur sama daginn og eyðir svo nóttinni á baðherberginu. Ég skil núna að mandarínuát á sér takmörk.
2. Gleði dagsins (sem er nú reyndar bara hálfnaður) var að finna þessa skó inni í skáp. Ég get bara ómögulega munað eftir að hafa keypt þá. Miðinn var ennþá á þeim þannig að ég hef líklega ekki stolið þeim blekuð úr einhverju partýi.
3. Já þetta eru ný naglalökk. Ég hef engar útskýringar. Ég er fíkill.
4. Skellti mér í grams áðan í þessari ljómandi fínu búð.
5. Gróf upp eina gersemi - glansandi gullskyrtu!
6. Hún var svo gott sem gefins.
Gleðilegan laugardag!
No comments:
Post a Comment