Til að byrja með ætti ég að koma þessari skyrtu í ruslið hið snarasta. Ég get ómöglega skilið af hverju ég lít alltaf út fyrir að vera komin allavega 7 mánuði á leið þegar ég sé myndir af mér í henni. Eins og það er nú grannur líkami sem leynist þarna undir.
Ég hef nú átt betri daga hvað fatasamsetningu varðar. Við þennan klæðnað vantar mig einungis öxina og ég væri klár út í skóg að höggva eldivið. Ég ætti í raun bara alls ekki að klæða mig fyrir hádegi. Ég þjáist alltaf af tímabundinni blindu á morgnana sökum syfju - þá verða outfit eins og þetta til!
No comments:
Post a Comment