Loksins varð þessi fagurgræna gersemi mín. Nú get ég kvatt pissið sem Senseo framleiðir og heilsað upp á alvöru bolla af kaffi.
Við þurfum að vísu að kynnast aðeins betur - ég og kaffivélin. Kaffið sem ég hellti upp á áðan var svo sterkt að ég gerði næstum í buxurnar við fyrsta sopa.
Jæja, maður má víst engan tíma missa. Það þarf að halda áfram kýla út vömbina. Hádegishangikjöt hjá mömmu og pabba, kökuboð og konfektát.
Gleðilega hátíð.
No comments:
Post a Comment