Naglalakk og rauðvín - besta blanda í heimi. Að minnsta kosti á meðan maður er ennþá á fyrsta glasi. Ég mæli hinsvegar ekki með því að naglalökkun fari fram á þriðja glasi. Það getur orðið svolítið sjoppulegt.
Þetta naglalakk heitir Luscious Brocade og er frá Alessandro. Ég er alveg hrikalega skotin í þessum lit. Hann er svo hátíðlegur og fallegur.
Í þessum skrifuðu orðum er ég að fara í leiðangur. Ekkert langt sko - bara í smá internetverslunarleiðangur. Eins og svo oft áður. Mig vantar kaffikönnu. Mjög sárlega. Það gengur ekkert að eiga kaffivél og enga könnu til þess að hella kaffinu í.
Verst að ég kem örugglega til með að panta að minnsta kosti tíu könnur. Ég á aldrei eftir að geta sætt mig við að eiga bara kaffikönnu í einum lit. Það gengur bara ekki upp.
Sjáum hvað setur.
No comments:
Post a Comment