Dec 24, 2012

Instagram vikunnar.



1. Það besta sem til er! Ostafylltar brauðstangir í söluskálanum á Egilsstöðum. Eitthvað sem allir verða að prófa í lífinu.
2. Ég nærði aðeins sálina í vikunni. Bara örlítið. Armbönd frá Velvet.
3. Jólalakkið. Eða átti að vera það að minnsta kosti. Ég keypti þrjú ný naglalökk í gær sem verða líklega prufuð áður en kirkjuklukkur hringja inn jól. Ekki segja sambýlismanninum samt. Hann má hreinlega ekki við því að vita af frekari naglalakkskaupum.
4. Ég á leið í jólasaumaklúbb. Klædd í hlébarðamynstur, að sjálfsögðu.
5. Þorláksmessuskata.
6. Ris a la mande í bígerð.
7. Ég búin að klúðra málunum - eins og svo oft áður þegar ég er í eldhúsinu. Sambýlismaðurinn búinn að grýta mér út og tekinn við stjórninni.
8. Mér fannst ekkert agalega leiðinlegt að láta henda mér út úr eldhúsinu. Ég hafði þá loks tíma til þess að sinna mínu helsta áhugamáli. Að drekka rauðvín og borða nammi.
9. Yndislega litla hjartað mitt bjó til listaverk handa mér. Hann veit sko alveg hvað fær hjartað í móður sinni til þess að slá. Bara nóg af glimmeri og mamma er kát.

Undursamlegur aðfangadagur framundan. Mikið sem ég ætla að njóta hans. Vona að þið gerið slíkt hið sama.

1 comment: