Dec 20, 2012

Augnakonfekt.

Það er ekki bara dásamlegt að borða Mackintosh - heldur líka að skreyta með því.


Stór plús við þessa skreytingu er að núna vil ég alls ekki éta molana. Það má auðvitað ekkert minnka í krukkunum. Það væri svo ósmekklegt. 

Ég hef alltaf verið dálítið skotin í gömlu dunkunum undan þessu dýrindis sælgæti.








Fyrir kaupsjúka Mackintosh-aðdáendur þá má finna ýmsar svona gersemar á Ebay. Ég mun láta það eiga sig að fjárfesta að þessu sinni. Sambýlismaðurinn er ennþá að ná sér eftir áfallið sem hann fékk í gær þegar ég tilkynnti honum blíðlega að ég hefði pantað mér rúmlega 60 naglalökk á netinu.

Ég vil nú ekki leggja meira á hann svona rétt fyrir jólin. Ég er svo tillitsöm og góð kona.

No comments:

Post a Comment