Dec 8, 2012

Wanted!

Ó heilögu Hunter boots - ég þrái ykkur öll með tölu.










Það er voðaleg togstreita að vera svona ægilega litaglöð. Ég held að ég gæti aldrei valið mér bara eitt svona par - það er bara ekki hægt að gera upp á milli.  Mest væri ég til að eiga hvert eitt og einasta! Og af því ég er ekki brjálæðislega sjálfselsk þá myndi ég alveg splæsa í eitt par fyrir son minn ef það væri í boði.


Við værum agalega lekker mæðginin ef við ættum svona stígvél. Sambýlismanninum yrði hinsvegar ekki boðið upp á par. Það væri víst nóg á hann lagt með því að láta hann horfa upp á okkur klæðast þessu.


4 comments:

  1. ég keypti mér rauð viking stígvél fyrr í vetur.. finnst þau sjúklega lík þessum en ekki allveg jafn dýr ;)

    ReplyDelete
    Replies
    1. er það? eru þau svona há upp eins og þessi? og svo verður þú líka að segja mér hvar þú keyptir þau! ;-)

      Delete
  2. vá hvað ég finn það á mér hvað ég myndi taka mig vel ut í þessum hlébarða! já takk!!

    er þetta ekki annars svona leikur þar sem maður deilir síðunni þinni & fær svona stígvél i vinning? ;)

    ReplyDelete
  3. hahahahahahahahaha. jú sara! í alvöru sko! deildu síðunni minni - facebook síðunni sko! og þú færð pottþétt hlébarðastígvél - LOFA!

    ReplyDelete